Út er komið yfirlitsskjal um rekstrarkostnað á hvert heilsdagsígldi leikskólabarna eftir stærð leikskóla árið 2019. Um er að ræða beinan rekstrarkostnað á almenna leikskóla sveitarfélaga.
Miðlægur kostnaður t.d. vegna skólaskrifstofa er ekki meðtalinn. Að gefnu tilefni er bent á að margvíslegar ástæður geta orsakað mun á lykiltölum eftir skólum og/eða sveitarfélögum. Hafa ber í huga að landfræðilegar aðstæður, eða breytur eins og samsetning starfsfólks í skóla getur haft áhrif á lykiltölur og því gagnlegt fyrir sveitarfélög að kanna nánar í hverju munurinn felst.
Reiknaður er rekstrarkostnaður með og án innri leigu. Árið 2019 var rekstrarkostnaður á hvert heilsdagsígildi að meðaltali rétt tæplega 2,8 m.kr þegar innri leiga er tekin með. Án innru leigu er meðalkostnaður á hvert heilsdagsígildi rétt um 2,5 m.kr. Mikill munur er á rekstrarkostnaði á hvert heilsdagsígildi eftir stærð leikskóla.