Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til opins fjarfundar undir yfirskriftinni Samræmd fræðsla og upplýsingagjöf sem ein undirstaða hringrásarhagkerfismiðvikudaginn 22. mars kl. 10:00 til 11:30. Fundurinn er annar fundurinn á árinu í fundarröð sambandsins undir hatti átaksins Samtaka um hringrásarhagkerfi.
Tilefnið eru breytingar á ýmsum lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis sem innleiddar voru í íslenskt regluverk í júní 2021 og komu til framkvæmda um síðustu áramót. Í lögunum er lögð áhersla á fræðslu til almennings og lögaðila og bera Umhverfisstofnun, sveitarfélög, Úrvinnslusjóður og Endurvinnslan ábyrgð á að þeirri skyldu sé framfylgt. Á fundinum verður kynnt sú fræðsla sem lykilaðilar til að koma á hringrásarhagkerfi munu standa fyrir á næstunni.
Umræðustjóri er Freyr Eyjólfsson, fjölmiðlamaður og sérfræðingur SORPU bs.
Opnun Freyr Eyjólfsson fundarstjór |
|
Allan hringinn – sameiginleg auglýsingaherferð um nýtt fyrirkomulag á úrgangsflokkun. Hugrún Geirsdóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun. |
|
Sérsöfnun og samræming á höfuðborgarsvæðinu (og Suðurnesjum). Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og viðskiptaþróunarstjóri SORPU. | |
Við viljum vera með. Arnheiður Hjörleifsdóttir, umhverfisfræðingur og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar. |
|
Kubbur er minn hirðir. Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarstjóri og Valgerður María Þorsteinsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Vesturbyggðar. |
|
Áherslur Úrvinnslusjóðs í kynningar- og fræðslumálum. Nánar síðar |
|
Skilakerfi drykkjarumbúða í hringrásarhagkerfi. Helgi Lárusson, framkvæmdastjór Endurvinnslunnar ehf. |
|
Endurvinnsla veiðarfæra. Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. |
|
Umræður |