Boðað er til rafræns málþings um nám og kennslu á tímum samkomubanns vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Að málþinginu standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Kennarasamband Íslands. Málþingið er hið fyrsta í röð viðburða sem haldnir verða haustið 2020 til þess að ræða áskoranir og tækifæri í menntakerfinu á tímum heimsfaraldursins.
Málþingið fer fram á netinu og verður streymt af vef Stjórnarráðsins. Það hefst kl. 15:00 og stendur yfir til kl. 16:30.
Á fyrsta málþinginu verða kynntar frumniðurstöður rafrænna kannana á framkvæmd skóla- og frístundastarfs á tímum samkomubanns vorið 2020.
Dagskrá málþingsins:
Setning: Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
- Menntakerfið á tímum COVID; spurningakannanir Menntavísindasviðs Háskóla Íslands vorið 2020.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs. - Áhrif samkomubanns á leikskólastarf, leik barna og hlutverk kennara.
Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - Reynsla þroskaþjálfa í grunn- og framhaldsskólum af áhrifum samkomubanns á þjónustu við nemendur.
Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - Áhrif fyrstu bylgju Covid á grunnskólastarfið og samskipti við foreldra.
Kristín Jónsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - Reynsla stjórnenda félagsmiðstöðva og frístundaheimila af skipulagi frístundastarfs á tímum samkomubanns.
Ársæll Már Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - Framhaldsskólinn í fyrstu bylgju Covid: Áskoranir og tækifæri.
Guðrún Ragnarsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - Fjarkennsla og stafræn tækni á tímum Covid.
Sólveig Jakobsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. - Viðbrögð skólastjórnenda leik-, grunn- og framhaldsskóla
- Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ,
- Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri, leikskólanum Króki, Grindavík
- Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri Giljaskóla, Akureyri.
Fundarstjórn og lokaorð: Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ
Málþingið er öllum opið og verður streymt á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.