Morgunfundur um áherslur í umsögnum sambandsins, sveitarfélaga og landshlutasamtaka um landsskipulagsstefnu. Fundurinn fer fram í gegnum Teams þriðjudaginn 22. desember og mun standa frá kl. 11:00-12:30.
Smelltu hér til að taka þátt í fundinum.
Við bendum þátttakendum á að til að tryggja gæði fundarins er nauðsynlegt að hafa slökkt á myndavélum og hljóðnemum en nýta sér frekar spjallið í Teams eða nota handaruppréttingu til að koma á framfæri athugasemdum og fyrirspurnum til fyrirlesara. Fundarstjóri mun þá gefa viðkomandi orðið og hvetja hann til að kveikja á myndavélinni sinni og hljóðnema.
11:00 | Stutt kynning á meginatriðum viðaukatillögunnar og helstu áherslur fulltrúa sambandsins við gerð hennar. Fulltrúar sambandsins í ráðgjafanefnd um gerð landsskipulagsstefnu: Hrafnkell Á. Proppé - upptaka af erindi Hrafnkels Unnur Valborg Hilmarsdóttir - upptaka af erindi Unnar |
11:20 | Helstu álitaefni við gerð umsagnar sambandsins. Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs sambandsins. - Upptaka af erindi Guðjóns |
11:30 | Umræður og fyrirspurnir. - Upptaka af umræðum og fyrirspurnum |
12:30 | Áætluð fundarlok. |
Fulltrúar Skipulagsstofnunar munu verða til taks til að svara fyrirpurnum og veita frekari skýringar, ásamt frummælendum.
Fundarstjóri: Dagbjört Jónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar