Sveitarfélög komu sér á árinu 2007 saman um að stofna til sérstaks verkefnis um hagsmunagæslu í úrgangsmálum, til að styrkja stöðu sína í þessu mikilvæga verkefni almannaþjónustu. Aðilar að verkefninu eru Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög og fyrirtæki í eigu sveitarfélaga. Verkefninu er ætlað að:
- Vera leiðandi í undirbúningi stefnumótunar sambandsins í úrgangsmálum
- Vera stjórn og starfsmönnum sambandsins til ráðgjafar um úrgangsmálefni
- Vekja athygli á þróun og breytingum í úrgangsmálum, innanlands og erlendis, sem verkefnisstjórn telur þörf á að sambandið vinni að eða miðli upplýsingum um
- Vekja athygli á málum í rekstri og starfsemi fyrirtækja sveitarfélaga á sviði úrgangsmála sem verkefnisstjórn telur að þarfnist úrlausnar á vettvangi sambandsins
- Vera til ráðgjafar við undirbúning viðburða sambandsins á sviði úrgangsmála, svo sem ráðstefna og námskeiða
Verkefnisstjórn um hagsmunagæslu í úrgangsmálum 2022-2026
- Jón Viggó Gunnarsson frá Sorpu
- Steinþór Þórðarsson frá Kalka sorpeyðingarstöð
- Friðrik Klingmeil Gunnarsson frá Reykjavíkurborg
- Hrefna Bryndís Jónsdóttir frá Sorpurðun Vesturlands
- Hildigunnur Rut Jónsdóttir frá Akureyrarbæ
- Stefán Aspar Stefánsson frá Múlaþingi