Sambandið á aðild að stærstu regnhlífarsamtökum evrópskra sveitarfélaga, CEMR, og stærstu alþjóðasamtökum sveitarfélaga og borga, U.C.L.G. Sambandið tilnefnir fulltrúa á Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins. Þá á sambandið einnig samstarf við norræn systursambönd sín.
Starfandi eru tengiliðahópar sérfræðinga norrænu sveitarfélagasambandanna á ýmsum sviðum, t.d. á sviði vinnumarkaðsmála, fjármála, lýðræðis- og stjórnunar, um málefni flóttamanna og innflytjenda, um löggjafarmál, svo og alþjóðamál sem baltnesku sveitarfélagasamböndin eru líka aðilar að. Þessi tengsl eru mjög mikilvæg þar sem löggjöf og menning eru svipuð í löndunum og því góðar forsendur fyrir þekkingaryfirfærslu, ekki síst fyrir sambandið að njóta góðs af reynslu og mannauði norrænu systursambandanna.
Nánar um erlend samstarfsverkefni sveitarfélaga.
Fulltrúar sambandsins í Stefnumótandi nefnd CEMR (Evrópusamtök sveitarfélaga og héraða)
- Heiða Björg Hilmisdóttir, Reykjavíkurborg
- Margrét Sanders, Reykjanesbær
- Einar Þorsteinsson, Reykjavíkurborg
Fulltrúar sambandsins á Sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins
- Hildur Björnsdóttir, Reykjavíkurborg
- Jón Björn Hákonarson, Fjarðabyggð
- Walter Fannar Kristjánsson, Flóahreppi
Fulltrúi sambandsins í Heimsráði (World Council) Alþjóðasamtaka sveitarfélaga
- Heiða Björg Hilmisdóttir, Reykjavíkurborg