Greint hefur verið frá því hver eru tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 sem verða veitt á Bessastöðum þann 5. nóvember n.k.
Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og ungmennum.
Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, auk sérstakra hvatningarverðlauna:
- Skólastarf eða menntaumbætur Skóli eða önnur menntastofnun, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr.
- Kennari Verðlaun veitt kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr.
- Þróunarverkefni. Þróunarverkefni sem stenst ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu.
- Iðn- eða verkmenntun. Kennari, námsefnishöfundur, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða annað framlag til iðn- eða verkmenntunar.