Niðurstaða í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands um kjarasamning félaganna við Samband íslenskra sveitarfélaga liggur nú fyrir. Samningurinn var samþykktur með miklum meirihluta atkvæða félagsmanna eða 80,55%. Kjörsókn var 32,83%.

Um er að ræða 17 stéttarfélög þ.e.:
- AFL starfsgreinafélag,
- Aldan stéttarfélag,
- Báran stéttarfélag,
- Drífandi stéttarfélag,
- Eining-Iðja,
- Framsýn stéttarfélag,
- Stéttarfélag Vesturlands,
- Stéttarfélagið Samstaða,
- Verkalýðsfélag Grindavíkur,
- Verkalýðsfélagið Hlíf,
- Verkalýðsfélag Snæfellinga,
- Verkalýðsfélag Suðurlands,
- Verkalýðsfélag Vestfirðinga,
- Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur,
- Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur,
- Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis og
- Verkalýðsfélag Þórshafnar.
Kjarasamningurinn er gerður í anda Lífskjarasamningsins á almennum vinnumarkaði og gildir frá 1. janúar 2020 til 30. september 2023.