Fréttir og tilkynningar
Öflugt, ábyrgt og sjálfbært fiskeldi
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent atvinnuveganefnd Alþings umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi. Frumvarpinu er ætlað að skapa aukna sátt um uppbyggingu fiskeldis hér á landi og leggja grunn að því sem öflugri, ábyrgri og sjálfbærri atvinnugrein. Frumvarpinu er ætlað að skapa aukna sátt um uppbyggingu fiskeldis hér á landi og leggja grunn að því sem öflugri, ábyrgri og sjálfbærri atvinnugrein.
Yfirlit yfir helstu mál á döfinni hjá ESB og EFTA 2018 sem gætu varðað sveitarfélög
EES-reglur hafa bein áhrif á sveitarfélög og því er mikilvægt að stunda virka hagsmunagæslu gagnvart ESB og stjórnvöldum. Brýnt er að fylgjast með undirbúningi stefnumótunar, löggjafar og annarra ákvarðana ESB sem geta haft áhrif á íslensk sveitarfélög og koma sjónarmiðum á framfæri eins snemma og mögulegt er í ákvörðunarferli mála.
Einn af þeim 100 bestu
Ingvi Hrannar Ómarsson, kennari í Skagafirði, hefur verið útnefndur af HundrED einn af 100 bestu í menntun (e. 100 most influential educators). Af því tilefni hafa samtökin birt viðtal við Ingva Hrannar á vef sínum þar sem hann er spurður út í hugmyndir sínar og hugmyndafræði.
Þjónustukannanir Byggðastofnunar
Íbúar í Vopnafjarðarhreppi sækja þjónustu til þjónustuaðila á Akureyri í um fimmtung tilvika, á meðan 3-5% þjónustunnar er sótt þangað af íbúum annarra sveitarfélaga á Austurlandi, samkvæmt niðurstöðum úr þjónustukönnunum Byggðastofnunar.
Ný lög samþykkt um þjónustu við fatlað fólk og félagsþjónustu sveitarfélaga
Alþingi hefur samþykkt ný lög um þjónustu við fatlað fólk og breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sem taka gildi 1. október nk. Með þessum breytingum verður notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) að lögfestu þjónustuformi.
Nefnd skipuð um stofnun þjóðgarðs á hálendinu
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað þverpólítíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga, þeim Valtý Valtýssyni, sveitarstjóra í Bláskógabyggð og Dagbjörtu Jónsdóttur, sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.
Vísitala félagslegra framfara
Kópavogsbær hefur fyrst sveitarfélaga tekið upp vísitölu félagslegra framfara, VFF (Social Progress Index). Vísitalan mælir hæfni samfélaga til að mæta grunnþörfum borgaranna og skapa þeim tækifæri til betra lífs. Samhliða hefur bæjarfélagið þróað lausnir fyrir þá mæli- og greiningarvinnu sem vísitalan krefst og nefndar hafa verið „Mælkó“.
Réttur barna í opinberri umfjöllun
Morgunverðarfundur Náum áttum hópsins, sem haldinn verður á Grand hóteli í Reykjavík, miðvikudaginn 25. apríl kl. 08:15-10:00, fjallar að þessu sinni um rétt barna í opinberri umræðu.
Nýir félagsvísar hafar verið gefnir út
Velferðarráðuneyti og Hagstofa Íslands hafa gefið út Félagsvísa og er þetta 6. útgáfan af þeim. Félagsvísar eru greiningartæki sem leiðir fram breytingar í samtímanum, s.s. vegna opinberra aðgerða og þjóðfélagsþróunar. Megintilgangur Félagsvísa er að birta á einum stað safn tölulegra upplýsinga til að auðvelda stjórnvöldum og almenningi að fylgjast með þróun og breytingum í samfélaginu.
Seyra nýtt til uppgræðslu
Úrbætur, sem gerðar verða á fráveitumálum við Mývatn, fela m.a. í sér að skólpseyra verður nýtt til uppgræðslu á Hólasandi, að því er fram kemur í viljayfirlýsingu ríkisins og Skútustaðahrepps um málið. Lausnin heyrir að miklu leyti til nýmæla hér á landi og var auk þess hagkvæmasta lausnin af þeim sem voru til skoðunar.
Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2018
Stjórn Námsleyfasjóðs, sem fer með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla, hefur lokið úthlutun árið 2018. Alls bárust umsóknir um styrki til 209 verkefna frá 77 umsækjendum upp á rúmar 101 milljón króna.
Hreinsum strandlengju Íslands
Átak Landverndar Hreinsum Ísland hefst á Degi umhverfisins þann 25. apríl nk. og stendur til 6. maí. Átakinu er ætlað að vekja athygli á þeim hættum sem plastmengun veldur í hafi og eru sveitarfélög hvött til að skipuleggja hreinsunaraðgerðir á þessu tímabili, jafnt á landi sem við sjó. Laugardaginn 5. maí verður gengist fyrir strandhreinsun samtímis á öllum Norðurlöndum.
Samstarfsyfirlýsing um menntun fyrir alla endurnýjuð
Samstarfsyfirlýsing um menntun fyrir alla á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, sem undirrituð var á síðasta ári, hefur verið endurnýjuð af samstarfsaðilum. Yfirlýsingunni fylgir skuldbinding um að styðja við langtímaþróun menntastefnu hér á landi um menntun fyrir alla. Til grundvallar samstarfinu liggur aðgerðaáætlun sem byggir á tillögum úr úttektarskýrslu Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir frá árinu 2017.
Umsögn um frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur sent allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur. Frumvarpinu er ætlað að leysa af hólmi lög um lögheimili nr. 21/1990 og lög um tilkynningar aðsetursskipta nr. 73/1992. Markmið frumvarpsins er að stuðla að því að búsetu- og aðsetursskráning einstaklinga sé rétt og að réttaröryggi í meðferð ágreiningsmála er varða skráningu lögheimilis og aðseturs verði tryggt.
Aldursdreifing í sveitarfélögum
Hag- og upplýsingasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur uppfært myndrænt excel-líkan fyrir aldursdreifingu sveitarfélaga á árunum 1998-2018. Um svonefnda aldurspýramída er að ræða, sem sýna með aðgengilegu móti þær breytingar sem hafa orðið á aldurssamsetningu einstakra sveitarfélaga á þessu tímabili.
Ný mannfjöldaspá til ársins 2066
Viðvarandi fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu samfara stöðugri fólksfækkun víða í landsbyggðunum, er sú mynd sem dregin er upp í megindráttum í nýrri mannfjöldaspá Byggðastofnunnar til ársins 2066. Helstu ástæður má rekja til lækkandi frjósemishlutfalls og brottflutnings ungs fólks til á höfuðborgarsvæðið.
Landsþing ungmennahúsa
Landsþing ungmennahúsa fór nýlega fram á Akureyri, en það er einn af þeim árlegu viðburðum sem Samfés gengst fyrir. Markmið landsþingsins er m.a. að gefa starfsfólki og ungu fólki í starfinu tækifæri til að hittast, tengjast, læra af hvert öðru og skiptast á skoðunum. Á meðal þess sem fjallað var um á þinginu voru ungmennahús framtíðarinnar.
Aukin áhersla á umbætur í opinberri starfsemi
Nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um afkomumarkmið og efnahag sveitarfélaga fyrir árin 2019-2023 var undirritað í dag af Halldóri Halldórssyni, formanni og Karli Björnssyni, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga annars vegar og hins vegar af Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurði Inga Jónssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.