Fréttir og tilkynningar
Heildarendurskoðun á útgáfu námsgagna
Mennta- og barnamálaráðuneytið stóð ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fleiri samstarfsaðilum fyrir málþingi um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna á föstudag. Meginumfjöllunarefnið var hvaða leiðir eru færar til að auka aðgengi nemenda að vönduðum námsgögnum.
Framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna
Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til málþings um framtíðarfyrirkomulag útgáfu námsgagna fyrir börn og ungmenni föstudaginn 16. febrúar kl. 13:00–17:00 á Reykjavík Natura að Nauthólsvegi 52 og í streymi.
Sex nýir stjórnendur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ráðið sex nýja stjórnendur en nýverið tóku gildi skipulagsbreytingar hjá sambandinu og eru ráðningarnar liður í þeirri vegferð þar sem markmiðið er að skerpa á hlutverki sambandsins og gera það í betur stakk búið til að takast á við þau verkefni og áskoranir sem sambandið sinnir frá degi til dags.
Leikskólinn Múlaborg hlýtur Orðsporið 2024
Dagur leikskólans er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið, hvatningarverðlaun leikskólans, í tengslum við þennan ánægjulega dag.
Fullnægjandi aðgreining úrgangsflokka skiptir máli
Sveitarfélög hafa verið að vinna að því að innleiða viðamiklar og auknar skyldur sem lagðar hafa verið á þau um úrgangsstjórnun og innleiðingu hringrásarhagkerfis í lögum nr. 103/2021. Þau þurfa að koma á sérstakri söfnun á ákveðnum flokkum heimilisúrgangs, þ.á.m. pappír og pappa, plasti, lífúrgangi auk þess að safna blönduðum úrgangi.
Vika6
Í tilefni Viku6 hefur Jafnréttisskóli Reykjavíkur staðið fyrir gerð fræðslumola á myndbandaformi í samstarfi við UngRÚV sem fjalla um kynlíf og kynvitund ungs fólks út frá ólíkum sjónarhornum.
Hvað er næst í loftslagsmálum og orkuskiptum?
Tveir viðburðir eru á döfinni undir hatti RECET verkefnisins.
Aðlögun að loftslagsbreytingum – leiðangur Horizon Europe
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur, fyrir hönd allra sveitarfélaga á Íslandi, skrifað undir sáttmála Evrópskra svæða um að vinna í sameiningu að aðlögun að loftslagsmálum (e. Charter signatory). Sáttmálinn er grundvallaður í Leiðangri Horizon Europe um aðlögun að loftslagsbreytingum
Þróun rekstrar grunnskóla frá 1996 til 2022
Þróun rekstrar grunnskóla frá því að þeir færðust frá ríki til sveitarfélaga frá 1996 til fram til ársins 2022 er gerð skil í nýrri skýrslu.
Blágrænar ofanvatnslausnir – leiðbeiningar
Veitur og Reykjavíkurborg hafa útbúið leiðbeinandi rit um innleiðingu og hönnun blágrænna ofanvatnslausna.
Styrkjatækifæri fyrir sveitarfélög
Evrópusambandið hefur fjármagnað nokkur verkefni sem hafa það að markmiði að veita sveitarfélögum í Evrópu stuðning, bæði fjárhagslegan og faglegan, vegna vinnu sem þau þurfa að ráðast í vegna orkuskipta og aðlögunar að loftslagsbreytingum.
Allar umbúðir verða endurvinnanlegar
Hlutfall umbúða í blönduðum úrgangi kann að minnka ef tillögur Evrópuráðsins ná fram að ganga. Óendurvinnanlegar umbúðir eru til dæmis mikið samsettar umbúðir úr ólíkum hráefnum sem ekki er hægt að taka í sundur og vissar umbúðir úr lífplasti sem brotna ekki niður við hefðbundna meðhöndlun.
Hækkun tekju- og eignamarka vegna sérstaks húsnæðisstuðnings fyrir árið 2024
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur uppfært tekju- og eignaviðmið fyrir árið 2024 í leiðbeiningum ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda.
Stuttmyndasamkeppni grunnskólanema um mörk og samþykki
Stuttmyndasamkeppnin SEXAN gefur nemendum í 7. bekk í grunnskólum á Íslandi tækifæri til að fá myndir sínar sýndar á RÚV. Viðfangsefnið er fjórar birtingarmyndir stafræns ofbeldis: samþykki, nektarmyndir, tæling og slagsmál ungmenna.
Umhverfis Ísland
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ákveðið að auka umfjöllun á sviði umhverfis- og loftslagsmála og hefja útgáfu á mánaðarlegu fréttabréfi.
Funduðu með eftirlitsnefnd Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, Walter Fannar Kristjánsson, sem situr í stjórn sambandsins, og Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri sambandsins, funduðu í gær með eftirlitsnefnd Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins.
Funduðu með fulltrúum Grindavíkur
Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga funduðu með Fannari Jónassyni, bæjarstjóra Grindavíkur og öðrum fulltrúum bæjarins í vikunni.
Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2024-2025. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2024.