Byggðaráðstefna með yfirskriftinni Menntun án staðsetningar? – framtíð menntunar í byggðum landsins verður haldin dagana 13. og 14. október nk. Ráðstefnan verður haldin í Hótel Kötlu á Höfðabrekku í Mýrdal.
Byggðaráðstefna með yfirskriftinni Menntun án staðsetningar? - framtíð menntunar í byggðum landsins verður haldin dagana 13. og 14. október nk. Ráðstefnan verður haldin í Hótel Kötlu á Höfðabrekku í Mýrdal.
Að ráðstefnunni standa Byggðastofnun, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga, Háskólafélag Suðurlands og Mýrdalshreppur. Tilgangur hennar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land.
Kallað er eftir erindum frá fræða- og háskólasamfélaginu, stefnumótendum og þeim sem vinna á vettvangi þar sem fjallað er um stöðu og þróun byggðar. Erindin geta fjallað um fyrirkomulag, breytingar og skipan skólahalds frá leikskóla til fullorðinsfræðslu og háskóla í víðum skilningi með áherslu á eftirfarandi:
- Breytingar á skólahaldi í kjölfar Covid-faraldurs, með aukinni fjarkennslu og fjarvinnu
- Sameining sveitarfélaga – tækifæri í skólastarfi?
- Verður staðbundinn skóli áfram „hjarta samfélagsins“? – hverjir eru hagsmunir nemenda?
- Geta ríki og sveitarfélög sameinast um rekstur skóla eða skólastigs?
- Er þörf á að hugsa gildandi skólaskipan upp á nýtt, jafnvel með nýju skólastigi?
- Eiga sveitarfélög að reka framhaldsskólastigið?
- Sameinaður leik-, grunn- og tónlistarskóli og framhaldsskóli
- Hefur núverandi skólakerfi hagsmuni allra nemenda að leiðarljósi og ef ekki, hvað er til ráða?
- Hvernig er tekið á menntun fólks af erlendum uppruna?
- Menntun og starfsþróun kennara og nýliðun á öllum skólastigum
- Hefur hugtakið „skóli“ fengið nýja merkingu á nýrri öld?
- Starfsmannavelta í litlum skólum í fámennari byggðarlögum og áhrif á gæði kennslu
Tillaga að fyrirlestri með stuttri innihaldslýsingu, 200-300 orða útdrætti, sendist til Byggðastofnunar á netfangið sigga@byggdastofnun.is eigi síðar en mánudaginn 8. júní 2020. Ráðstefnuhaldarar áskilja sér rétt til að velja og hafna tillögum að erindum.