Skipulagsdagurinn verður haldinn föstudaginn 12. nóvember í Salnum, Kópavogi
Framtíðin verður í fyrirrúmi á Skipulagsdeginum, árlegri ráðstefnu Skipulagsstofnunar um skipulagsmál og þróun þeirra. Yfirskriftin er Skipulag fyrir nýja tíma – og verður sjónum beint sérstaklega að þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir með tilliti til lífsgæða, samgöngumiðaðs skipulags, sjálfbærni í byggðu umhverfi og aðlögunar vegna loftslagsbreytinga og náttúruvár. Ráðstefnan er að vanda haldin í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.
9.00 |
Fylgt úr hlaði |
Umhverfi okkar og ímyndunaraflið Sverrir Norland, rithöfundur |
|
Ávarp forstjóra Skipulagsstofnunar, Ásdísar Hlakkar Theodórsdóttur | |
Ávarp formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, Aldísar Hafsteinsdóttur | |
10.00 |
Aðlaðandi og sjálfbær byggð |
New European Bauhaus Ruth Reichstein, ráðgjafi á skrifstofu forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins |
|
Stutt kaffihlé |
|
Áherslur New European Bauhaus í íslensku samhengi Hildigunnur Sverrisdóttir, Listaháskóla Íslands |
|
Vistvænn og grænn nýi Skerjafjörður Rebekka Guðmundsdóttir, Reykjavíkurborg |
|
Deiliskipulagstillaga, Ráðhústorg og umhverfi, Hafnarfirði – Reitur 1 Þorsteinn Helgason, ASK arkitektum |
|
Byggt inn í náttúru í Hveragerði Þráinn Hauksson, Landslagi |
|
Stígar í vetrarborg Anna Kristín Guðmundsdóttir, Teiknistofu Norðurlands |
|
Borgarskipulag og samgönguvenjur á Höfuðborgarsvæðinu Harpa Stefánsdóttir, Norska lífvísindaháskólanum (NMBU) |
|
12.00 |
Hádegishlé |
13.15 |
Skipulag og aðlögun fyrir breytta tíma |
Aðlögun og loftslagsþjónusta á Íslandi Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar, Veðurstofu Íslands |
|
Skipulag og aðlögun: að búa okkur undir það sem við vitum – og vitum ekki – um framtíðina Birna Björk Árnadóttir, Skipulagsstofnun |
|
Áskoranir skipulagsyfirvalda – hopun jökla Brynja Dögg Ingólfsdóttir, Sveitarfélaginu Hornafirði |
|
Þegar allt gerist í einu – Skipulagsáskoranir í kjölfar náttúruhamfara Stefán Bogi Sveinsson, Múlaþingi |
|
Grænn og heilsuvænn Grundarfjörður Björg Ágústsdóttir, Grundarfjarðarbæ |
|
14.45 |
Kaffihlé |
15.00 |
Skipulag fyrir nýja öld |
Panelumræður Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Skipulagsstofnun Björn Axelsson, Reykjavíkurborg Guðjón Bragason, Sambandi Íslenskra sveitarfélaga Jón Björn Hákonarson, Fjarðabyggð Ólafur Þór Ólafsson, Tálknafjarðarhreppi |
|
16.00 |
Ráðstefnuslit, léttar veitingar |
|
Fundarstjóri er Hrafnkell Proppé |
Skráning á viðburðinn fer fram hér.
Boðið verður upp á hádegisverð og kaffiveitingar.
Streymt verður af viðburðinum á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar. Ekki er þörf á að skrá sig í streymi.
Deginum verður skipt í þrjú meginþemu, en við byrjum daginn á hugleiðingu Sverris Norland rithöfundar sem nýlega gaf út bókina Stríð og klið, þar sem hann veltir fyrir sér nútímanum út frá loftslagsmálum og tæknibreytingum. Síðan taka við erindi um Aðlaðandi og sjálfbæra byggð þar sem fjallað verður um leiðir til að skipuleggja okkar byggða umhverfi með þarfir fólks í huga, þar sem gæði húsnæðis, fagurfræði, aðgengi að greiðum samgöngum og nálægð við græn svæði verða ofarlega á baugi. Meðal frummælenda verður Ruth Reichstein, ráðgjafi á skrifstofu forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem mun segja frá New European Bauhaus, sem er átak sem ESB hleypti af stokkunum árið 2020 um hið byggða umhverfi út frá fagurfræði, nýsköpun, tækni og umhverfismálum. Við taka síðan framlög sem setja áherslur New European Bauhaus í íslenskt samhengi beint og óbeint. Meðal annars verða kynnt nokkur skipulagsverkefni úr ólíkum aðstæðum og stöðum á landinu þar sem unnið hefur verið á eftirtektarverðan hátt með sjálfbærni, fagurfræði og notagildi.
Eftir hádegi
Eftir hádegi verður athyglinni fyrst beint að Skipulagi og aðlögun fyrir breytta tíma og litið til þeirra miklu áskorana sem við stöndum frammi fyrir við aðlögun byggðar og samfélags vegna afleiðinga loftslagsbreytinga. Í framlögum frá Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og nokkrum sveitarfélögum verður rætt um hvernig við getum best séð fyrir og unnið út frá þeim áskorunum sem umhverfisbreytingar og náttúruvá fela í sér fyrir skipulagsgerð og sagt frá skipulagsverkefnum frá ólíkum stöðum á landinu.
Skipulag fyrir nýja öld - pallborðsumræður
Dagskránni eftir hádegi lýkur síðan með pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Skipulag fyrir nýja öld, þar sem rætt verður vítt og breitt um skipulagskerfið og framkvæmd skipulagsmála út frá viðfangsefnum og áskorunum okkar samtíma og framtíðar. Kveikjan er meðal annars að í ár eru 100 ár liðin frá setningu fyrstu skipulagslaganna og þannig má segja að upp sé að renna ný skipulagsöld.
Covid ráðstafanir
Við biðjum gesti um að hafa grímuna meðferðis, en grímuskylda verður í salnum. Gestir eru jafnframt hvattir til að taka hrað- eða heimapróf áður en komið er í Salinn og gæta almennt að persónulegum sóttvörnum.
Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega og nýta sér vistvæna ferðamáta.