Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál. Í ár verður sjónum beint að nokkrum af helstu viðfangsefnum og áskorunum okkar tíma í skipulagsmálum og landnotkun: stafrænni vegferð, fæðuöryggi, skipulagi bæjarrýmis og orkuskiptum. Fjölbreyttur hópur sérfræðinga og hagsmunaaðila frá ríki, sveitarfélögum og úr atvinnulífinu taka til máls og má búast við frjóum og áhugaverðum framsögum. Fundarstjóri verður Guðmundur Gunnarsson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi bæjarstjóri.
Ráðstefnugjald er 6.000 krónur. Innifalið eru kaffiveitingar, hádegisverður og léttar veitingar að ráðstefnu lokinni. Sérstakur afsláttur er fyrir háskólanema, sem greiða 3000 krónur. Skipulagsdagurinn verður einnig í beinu streymi og geta fjarfundargestir nýtt sér forritið www.Sli.do til að leggja fram spurningar og taka þátt í umræðum.
09:00 | Opnun fundarstjóra Guðmundur Gunnarsson, fjölmiðlamaður |
09:10 | Ávarp Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra |
09:25 | Ávarp Ólafur Árnason, settur forstjóri Skipulagsstofnunar |
Stafræn vegferð
09:30 | Digital Transformation of Planning in Scotland Liz Pringle, forstöðumaður stafræns skipulags hjá Skipulagsstjóra skosku heimastjórnarinnar |
09:55 | Stafræn vegferð í skipulagsmálum: Bylting í yfirsýn, miðlun og samráði Ólafur Árnason, settur forstjóri Skipulagsstofnunar |
10:10 | Pallborðsumræður Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar Haraldur Sigurðsson, deildarstjóri aðalskipulags hjá Reykjavíkurborg Kristinn Pálsson, skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar |
10:40 | K A F F I H L É |
Fæðuöryggi
11:00 | Staða Íslands með tilliti til fæðuöryggis Jóhannes Sveinbjörnsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands |
11:15 | Flokkun landbúnaðarlands – og hvað svo? Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra |
11:30 | Pallborðsumræður Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga Guðrún Lára Sveinsdóttir, sviðsstjóri aðalskipulags hjá Skipulagsstofnun Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna |
12:00 | H Á D E G I S V E R Ð U R |
13:00 | Ávarp Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga |
Bæjarrýmið
13:15 | Mannlíf, byggð og bæjarrými: Leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Stiku |
13:35 | Að byggja borg – Leiðbeiningar við gerð deiliskipulagsáætlana og aðrir hönnunarþættir Borghildur Sturludóttir, deildarstjóri deiliskipulags hjá Reykjavíkurborg |
13:50 | Pallborð Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs hjá Akureyrarbæ Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins Hildur Gunnarsdóttir, skipulagsfulltrúi hjá Hveragerðisbæ |
14:20 | K A F F I H L É |
Orkuskiptin
14:40 | Hvað felst í orkuskiptunum? Marta Rós Karlsdóttir, sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar og staðgengill Orkumálastjóra |
15:00 | Vindorkunýting á forsendum sveitastjórna Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar og formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs Múlaþings |
15:20 | Pallborð Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga Hólmfríður Bjarnadóttir, skrifstofustjóri húsnæðis- og skipulagsmála hjá innviðaráðuneytinu Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta- og þróunarstjóri Sorpu |
15:50 | Samantekt og lokaorð Ólafur Árnason, settur forstjóri Skipulagsstofnunar |
16:00 | Móttaka – léttar veitingar |