Fyrirhugað er að halda landsfund um jafnréttismál fimmtudaginn 14. október.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á vef Jafnréttisstofu.
Takið daginn frá.
Ný jafnréttislöggjöf (lög nr. 150/2020 og 151/2020). Fjallað verður almennt um lögin og helstu breytingar á þeim. |
Ný jafnréttislöggjöf og áhrif hennar á sveitarfélög. Sérstaklega verður rætt um áætlanir sveitarfélaga um jafnréttismál og ákvæði um menntun og skólastarf. |
Þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, 2021-2025 Farið verður yfir mikilvægt hlutverk Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna í tengslum við skólastarf, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, íþrótta- og æskulýðsstarf og annað tómstundastarf. |
Hvað er að gerast í jafnlaunamálum sveitarfélaganna? Hvað er efst á baugi? Hver er staða jafnlaunavottunar o.fl. |
Atvinnuþátttaka og tekjumunur eftir búsetu. Kynning á verkefni í Byggðaáætlun 2018-2024. |