Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa verða rafrænn að þessu sinni. Boðað er til þriggja rafrænna morgunfunda í apríl frá kl. 09:00-10:30. Fundirnir verða sem hér segir:
- 8. apríl - Loftslagsmál, loftgæði og sveitarfélög
- 15. apríl - Vannýtt þekking í heimabyggð? Hvernig geta náttúrustofur stutt við starf náttúruverndarnefnda?
- 28. apríl - Greiðum götu hringrásarhagkerfisins. Nýting hráefna úr úrgangi
Fundirnir eru öllum opnir og ekki þarf að skrá þátttöku. Nánari upplýsingar, tengla og upptökur má nálgast á vefsíðu Umhverfisstofnunar.
Dagskrá fundar 28. apríl 2021
Greiðum götu hringrásarhagkerfisins
Nýting hráefna úr úrgangi
Hlekk á fundinn má nálgast hér: ust.is/fundur20210428
09:00- 09:10 Ávarp, Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings
09:10-09:25 Allir græða - innlend moltuframleiðsla, Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri SORPU bs.
09:25-09:40 Moltugerð – reglugerðakröfur, Valgeir Bjarnason fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun
09:40-09:50 Fyrirspurnir og umræður
09:50-10:05 Umhverfisstefna landbúnaðarins, Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Unnsteinn Snorri Snorrason framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda
10:05-10:20 Hey, heyrúlluplast! Innlend endurvinnsla og verðmætasköpun, Sigurður Halldórsson framkvæmdastjóri Pure North Recycling
10:20-10:30 Fyrirspurnir og umræður