Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur leitað eftir samtali við sambandið um fundi með sveitarfélögum um drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032 (mál 6/2021) og drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis (mál 11/2021) en bæði þessi mál hafa birst nýlega í samráðsgátt stjórnvalda.
Upptökur af fundunum
- Upptaka af fundinum með SSNV
- Upptaka af fundinum með SSNE
Fundirnir voru eftirfarandi:
- Fundur með sveitarfélögum á starfssvæði SSNV: Fimmtudagur 28. janúar, kl. 09:00-10:00.
- Fundur með sveitarfélögum á starfssvæði SSNE: Fimmtudagur 28. janúar, kl. 14:00-15:30.
SMELLTU HÉR TIL AÐ TENGJAST FUNDINUM KL. 14:00
Umsagnarfrestur við frumvarpsdrögin rennur út 29. janúar. Samtal við landshlutasamtökin hefur átt sér stað um fyrirkomulag fundanna. Það var mat sambandsins og ráðuneytisins að það myndi gagnast best að halda fleiri og svæðisbundna fundi þar sem horft væri til samstarfs sveitarfélaga um svæðisáætlanir um meðhöndlun úrgangs, skv. 6. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
- Drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032
- Drög að breytingu á lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og sambandið boða hér með til þriggja funda með sveitarstjórnarfólki og starfsfólki sveitarfélaganna og fyrirtækja í þeirra eigu sem koma að úrgangsmálum og innleiðingu hringrásarhagkerfis. Einnig eru velkomnir fulltrúar í stjórnum landshlutasamtakanna og starfsfólk þeirra á hverjum stað eins og sjá má hér að neðan.
Dagskrá fundanna:
- Kynning ráðherra á drögum að stefnu og drögum að frumvarpi (ca. 20 mín.).
- Kynning úr héraði eða kynning frá Sambandinu (ca. 10-15 mín.).
- Umræður.
Fundirnir fara fram í gegnum Microsoft Teams.