Samband íslenskra sveitarfélaga og Samorka boða til sameiginlegs fundar um stuðning ríkisins við sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda. Fundurinn fer fram í gegnum Microsoft Teams forritið fimmtudaginn 14. janúar og hefst kl. 13:00 stundvíslega. Mjög mikilvægt er að þátttakendur hafi slökkt á myndavél sinni og hljóðnema allan tímann. Umræður og fyrirspurnir fara fram í gegnum spjallið og einnig má rétta upp hönd og fá orðið.
Smelltu hér til að tengjast fundinum
Reglugerð um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga var birt í Stjórnartíðindum þann 30. desember 2020. Á fundinum verður fjallað um aðdraganda og mikilvægi slíks styrkjakerfis, auk þess sem fulltrúi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu mun kynna nýja reglugerð og fyrirkomulag við úthlutun styrkja. Einnig mun gefast tækifæri til spurninga og umræðna.
Dagskrá fundarins:
Fundarstjóri: Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar.
- Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku opnar fundinn - Upptaka af erindi Páls
- Kjartan Ingvarsson, lögfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, kynnir nýja reglugerð og fyrirkomulag um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga. - Upptaka af erindi Kjartans
- Spurningar og umræður - Upptaka af spurningum og umræðum