Alþingi samþykkti fyrr í vetur í aðgerðapakka 1 og 2 tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu sem innt er af hendi á tímabilinu 1. mars 2020 til og með 31. desember 2020.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts nær til eftirfarandi vinnu sem:
- Byggjendur íbúðar- og frístundahúsnæðis hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað.
- Eigendur íbúðar- og frístundahúsnæðis hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað við endurbætur eða viðhald þess.
- Byggjendur íbúðar- og frístundahúsnæðis hafa greitt af þjónustu vegna hönnunar eða eftirlits með byggingu þess.
- Eigendur íbúðar- og frístundahúsnæðis hafa greitt af þjónustu vegna hönnunar eða eftirlits við endurbætur eða viðhald þess.
- Eigendur eða leigjendur, þar á meðal húsfélög, hafa greitt af vinnu manna vegna heimilisaðstoðar eða reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis.
- Sveitarfélög eða stofnanir og félög sem alfarið eru í eigu sveitarfélaga hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað við byggingu, endurbætur eða viðhald á öðru húsnæði sem alfarið er í eigu þeirra, enda sé húsnæðið skráð í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands.
Þann 19. júlí var undirrituð reglugerð nr. 690/2020 um tímabundna endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Þar er meðal annars að finna skilgreiningu á hugtakinu „öðru húsnæði“ sbr. 6. lið hér að ofan en sú skilgreining hefur mikil áhrif á endurgreiðslumöguleika sveitarfélaga. Annað húsnæði er skilgreint sem: Húsnæði í eigu sveitarfélaga eða stofnana og félaga sem alfarið eru í eigu sveitarfélaga, annað en íbúðar- og frístundahúsnæði. Um er að ræða hús, þ.e. byggingu með veggjum og þaki, eða hluta húss, sem er varanlega skeytt við land, er skráð í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands og ætlað til nota í starfsemi aðila skv. 1. málsl., t.d. íþróttahús, áhaldahús eða vörugeymsla. Hér undir falla því ekki önnur mannvirki, s.s. skýli, umferðar- og göngubrýr, dreifi- og flutningskerfi veitufyrirtækja, útisvæði sundlauga og annarra íþróttamannvirkja, sem ekki teljast til húsnæðis.
Kemur síðan fram að virðisaukaskattur fæst ekki endurgreiddur af eftirtöldu:
- Vinnu veitufyrirtækja við lagnir að og frá íbúðar- og frístundahúsnæði eða mannvirki.
- Vinnu við sameiginlegar framkvæmdir á skipulögðu svæði fyrir frístundabyggð, s.s. vegaframkvæmdir, lagningu girðingar umhverfis frístundabyggð o.fl. hliðstæðar framkvæmdir.
- Vinnu stjórnenda skráningarskyldra ökutækja, stjórnenda farandvinnuvéla og vinnuvéla, sem skráningarskyldar eru í vinnuvélaskrá, á byggingarstað.
- Vinnu sem unnin er á verkstæði, þó ekki vinnu á verkstæði skv. f-lið 1. mgr. 1. gr.
- Vinnu sem unnin er með vélum sem settar eru upp á byggingarstað til aðvinnslu á vöru eða efni til byggingar, viðhalds eða endurbóta á íbúðar- og frístundahúsnæði eða mannvirki ef þessi vinna er að jafnaði unnin á verkstæði eða í verksmiðju.
- Reglulegri umhirðu fólksbifreiðar eða minniháttar viðhaldi hennar, s.s. ábyrgðarskoðun, tjónamati, ástandsskoðun, hjólbarðaviðgerðum, hjólbarðaskiptum, smurþjónustu, þrifum og bóni.
- Ástandsskoðun fasteigna, matsgerðum og gerð útboðsgagna.
- Gerð deiliskipulags.
Nánari upplýsingar má finna í samantekt sambandsins á stöðu aðgerða í aðgerðarpökkum 1 og 2 vegna COVID-19 sem varða sveitarfélögin.