Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2018 – 2019. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2018 - 2019. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Í 4 gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:
Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.
Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:
- Menntun fyrir alla
- Verklegt nám
- Vellíðan
Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind, að raunhæfar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint.
Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf.
Fyrir skólaárið 2018 - 2019 verða til úthlutunar allt að 54 milljónum kr.
Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is.
Tekið verður á móti umsóknum frá 10. til 31. mars 2018.
Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Sigrún Vésteinsdóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460-8904 eða í tölvupósti á sv@unak.is.