Samband íslenskra sveitarfélaga óskar eftir áhugasömum sveitarfélögum til þátttöku í verkefni um kostnað og tekjur sveitarfélaga vegna meðhöndlunar úrgangs. Verkefnið hefst í desember 2023 og lýkur í júní 2024.
Kostnaður sveitarfélaga er að aukast verulega í tengslum við meðhöndlun úrgangs og er markmið verkefnisins að ná betri yfirsýn yfir kostnað sveitarfélaga í málaflokknum, hvernig hann hefur verið að þróast síðastliðin ár og út frá niðurstöðum leggja fram tillögur að hagræðingu í rekstri.
Gert er ráð fyrir að fimm sveitarfélög verði valin til þátttöku í verkefninu út frá ákveðnum valforsendum sem eru:
- Dreifing yfir landið, m.t.t. til stærðar, staðsetningar, dreifbýli eða þéttbýli eða hvoru tveggja
- Rekstrarform á þjónustu (samningur við verktaka, byggðasamlag eða annað)
- Stöðu gagnvart innleiðingu nýrra lagakrafna
- Svigrúm til að leggja fram vinnu til verkefnisins (mannauður, tími, geta o.s.frv.)
- Aðgengi að upplýsingum
Þátttökusveitarfélög þurfa að tilnefna a.m.k. einn tengilið sem getur lagt fram ákveðna vinnu til verkefnisins sem felur í sér samskipti við ráðgjafa, gagnaöflun og setu á fundum. Þátttökusveitarfélög þurfa að vera reiðubúin til að vinna að gagnaöflun m.a. um þjónustu sem sveitarfélagið veitir og um kostnað og tekjur í úrgangsmálum og veita aðgengi ráðgjafa verkefnisins að gögnum sem unnið er með. Dæmi um gögn eru reikningar sem borist hafa sveitarfélaginu vegna meðhöndlunar úrgangs, samningar um kaup á þjónustu, vörum og framkvæmdum og önnur gögn sem tengjast úrgangsstjórnun sveitarfélagsins. Þátttaka í verkefninu er innsigluð með undirritun viljayfirlýsingar allra aðila.
Ávinningur sveitarfélaga af þátttöku í þessu verkefni er aukin þekking á myndun kostnaðarliða og tekna í tengslum við meðhöndlun úrgangs. Auk þess munu sveitarfélög fá tillögur að úrbótum sem leiða til aukinnar hagkvæmni og bættrar heildaryfirsýnar í málaflokknum.
Sveitarfélögum, sem verða ekki valin til þátttöku, mun bjóðast að taka þátt í bakhópi um kostnað sveitarfélaga vegna meðhöndlunar úrgangs sem settur verður á laggirnar á meðan verkefninu stendur.
Sveitarfélög sem vilja sækja um þátttöku í verkefninu er bent á að senda inn umsókn á skráningarsíðu hér. Tekið verður á móti umsóknum til og með 7. desember. Val á þátttökusveitarfélögum mun liggja fyrir 13. desember og verður niðurstaðan tilkynnt þeim sveitarfélögum sem óska eftir þátttöku fljótlega í kjölfarið.
Nánar um verkefnið:
Sambandið leiðir verkefnið með aðstoð ráðgjafa sem munu vinna greiningarvinnuna og setja fram niðurstöður verkefnisins. Verkefnið er í tveimur áföngum og ráðgert er að hefja verkefnið í desember 2023 og að niðurstöður liggi fyrir í júní 2024.
Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum í verkefninu:
- Hvernig er kostnaður og tekjur sveitarfélaga að þróast fyrir meðhöndlun úrgangs síðastliðin 10 ár?
- Eru sveitarfélög að uppfylla lagakröfur þegar kemur að bókfærslum, gjaldskrárgerð og innheimtu vegna meðhöndlunar úrgangs?
- Hvernig þurfa bókhaldsfærslur sveitarfélaga vegna meðhöndlunar úrgangs að breytast svo þær nái betur utan um útgjaldaliði og tekjur í málaflokknum og styðji við breytta innheimtu sveitarfélaga vegna innleiðingar Borgað þegar hent er?
- Eru sveitarfélög með nægjanlegar upplýsingar og yfirsýn yfir kostnaðarmyndun í málaflokknum?
- Hver er kostnaðarþátttaka Úrvinnslusjóðs vegna kostnaðar sveitarfélaga á meðhöndlun á úrgangi á ábyrgð Úrvinnslusjóðs?
- Hvernig eru fjárfestingar að stuðla að því að sveitarfélög uppfylli hlutverk sitt og ábyrgð skv. nýju lögunum og eru vísbendingar um að innviði skorti?
- Þau sem óska eftir frekari upplýsingum um verkefnið geta haft samband við Flosa Hrafn Sigurðsson (flosi.hrafn.sigurdsson@samband.is) eða Hugrúnu Geirsdóttur (hugrun.geirsdottir@samband.is), sérfræðinga sambandsins.