Orkufundur 2021, sem var frestað sl. vor, verður haldinn 14. janúar nk.
Orkufundur á vegum Samtaka orkusveitarfélaga sem stóð til að halda í maí á síðasta ári en var frestað verður haldinn föstudaginn 14 janúar 2022. Yfirskrift fundarins er Orka og matvælaframleiðsla. Fundurinn verður á Teams og verða upptökur af fundinum aðgengilegar á vefsíðu Samtaka orkusveitarfélaga.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn en tengill á fundinn verður sendur til skráðra þátttakenda þegar nær dregur.