Í tilefni af Alþjóðlega hamingjudeginum 2024, miðvikudaginn 20. mars, standa Embætti landlæknis, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Samband íslenskra sveitarfélaga, Festa – miðstöð um sjálfbærni og Endurmenntun Háskóla Íslands að málþingi í hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 13:00–16:00.
Málþingið er öllum opið og verður í beinu streymi. Umfjöllunarefnið í ár beinist að ungu fólki en yfirskrift málþingsins er „Hamingja unga fólksins - hvernig undirbúum við þau sem best fyrir lífið?“. Áhersla þingsins í ár verður á vellíðan ungmenna og þátttöku þeirra á atvinnumarkaði.
Dagskrá:
13:00 | Opnun |
Ávarp Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra | |
Hamingjutölur - Hvernig líður unga fólkinu okkar? Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá Embætti landlæknis og kennslustjóri diplómanáms í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ | |
Breyttar áherslur nýrra kynslóða á vinnumarkaði Ísabella Ósk Másdóttir, samskiptastjóri Festu - miðstöðvar um sjálfbærni | |
„Heilsumst alla daga!“ - Lýðheilsa jafnt að innan sem utan Krónunnar Fanney Bjarnadóttir, verkefnastjóri lýðheilsu hjá Krónunni | |
Getur hamingjan verið sjálfbær? Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu | |
14:10 | Kaffihlé |
Valdefling ungs fólks fyrir bjartari framtíð: Að stuðla að hamingju, jafnrétti kynjanna og sjálfbærri þróun Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi ásamt Thelmu Lind Árnadóttur og Sóleyju Guðjónsdóttur úr barna- og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna | |
„Frá vanvirkni til þátttöku“ Þverfaglegt þróunarverkefni hjá Sveitarfélaginu Árborg - Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson, deildarstjóri frístundaþjónustu Árborgar | |
„Gott að sjá þig!“ Upptekið ávarp Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra | |
Hamingjudans Margrét Leifsdóttir, arkitekt og heilsumarkþjálfi | |
Pallborðsumræður | |
16:00 | Málþingslok |
Fundarstjóri er Gunnar Hrafn Kristjánsson og pallborðsumræðum stjórnar Elín Hirst.