Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur uppfært tekju- og eignaviðmið fyrir árið 2023 í leiðbeiningum ráðherra til sveitarfélaga um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings til leigjenda.
Uppfærslan tengist aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu sem kynntar voru fyrr í mánuðinum.
Tekju- og eignamörk hækka afturvirkt um 2,5% frá 1. janúar 2023. Nýju tekjumörkin eru eftirfarandi:
Fjöldi heimilismanna | Neðri tekjumörk á ári | Efri tekjumörk á ári | Neðri tekjumörk á mánuði | Efri tekjumörk á mánuði |
1 | 4.940.697 | 6.175.872 | 411.725 | 514.656 |
2 | 6.534.470 | 8.168.088 | 544.539 | 680.675 |
3 | 7.650.112 | 9.562.639 | 637.509 | 796.887 |
4 eða fleiri | 8.287.620 | 10.359.524 | 690.634 | 863.2931) |
Eignamörk hækka úr 7.157.858 kr. í 7.336.805 kr.
Ráðuneytið beinir því til sveitarfélaga að taka mið af framangreindri hækkun við endurskoðun eigin reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.