Samantekt hag- og upplýsingasviðs úr ársreikningum 10 stærstu sveitarfélaga landsins leiðir í ljós, að afkoma var á síðasta ári góð og fjárfestingar miklar. Fjárfestingar jukust í A-hluta um 36% frá árinu 2017 og rekstrarafgangur svaraði til 4,2% af heildartekjum, sem er jafnframt aðeins betri árangur en árið áður. Veltufé frá rekstri nam 11,2% af heildartekjum árið 2018, samanborið við 10,2% árið áður, 11,7% árið 2016 og 12,7% árið 2015.
Samantekt hag- og upplýsingasviðs úr ársreikningum 10 stærstu sveitarfélaga landsins leiðir í ljós, að afkoma var á síðasta ári góð og fjárfestingar miklar. Fjárfestingar jukust í A-hluta um 36% frá árinu 2017 og rekstrarafgangur svaraði til 4,2% af heildartekjum, sem er jafnframt aðeins betri árangur en árið áður. Veltufé frá rekstri nam 11,2% af heildartekjum árið 2018, samanborið við 10,2% árið áður, 11,7% árið 2016 og 12,7% árið 2015.
Fjárfesting var umfram það sem reksturinn skilaði og var að hluta til fjármögnuð með lántökum. Þá luku flest sveitarfélög uppgjöri við Brú lífeyrissjóð með lántökum á árinu og hækkuðu skuldir því einnig um það sem þeim nemur. Í krónum talið jukust skuldir og skuldbindingar A-hluta um 8,4% og hækkuðu sem hlutfall af heildartekjum úr 109,6% í 112,4% á milli ára.
Þegar fyrirtækjum og stofnunum í meirihlutaeigu sveitarfélaga, B-hlutanum, er bætt við A-hlutann fæst samstæða sveitarfélaga. Rekstrarafgangur af samstæðu 10 stærstu sveitarfélaganna nam á síðasta ári 6,2% af heildartekjum, sem er talsvert lakari niðurstaða en árið áður þegar rekstrarafgangur var 11,5% af tekjum.
Þennan umsnúning má alfarið rekja til OR og þeirra sveiflna í afleiðum á álverði sem bókaðar eru í reikningum fyrirtækisins. Þessara áhrifa gætir ekki í veltufé þar sem tenging við álverð hefur ekki áhrif á fjárstreymi. Veltufé frá rekstri samstæðnanna nam 19% af heildartekjum árið 2018 en 17,5% árið áður. Hafa ber í huga að Orkuveita Reykjavíkur (OR) er langstærst allra B-hluta fyrirtækja og eru rekstrartekjur þess töluvert meiri en tekjur Kópavogsbæjar, svo að dæmi sé tekið.
Þá dró heldur úr fjárfestingum í B-hluta á árinu 2018 og munar þar ekki hvað síst um minni fjárfestingar hjá OR. Sökum aukinna fjárfestinga í A-hluta, aukast þó heildarfjárfestingar samstæðnanna á milli ára. Námu fjárfestingar samstæðnanna 18,5% af heildartekjum árið 2018 en 17,1% árið áður.
Tíu fjölmennustu sveitarfélög landsins eru Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Akureyrarkaupstaður, Reykjanesbær, Garðabær, Mosfellsbær, Sveitarfélagið Árborg, Akraneskaupstaður og Fjarðabyggð. Í þessum sveitarfélögum búa um 80% landsmanna.
Í meðfylgjandi töflu eru tekin saman helstu atriði úr ársreikningum. Taflan sýnir samtölu þessara tíu sveitarfélaga og tölur ekki blásnar upp til heildar.
Ársreikningar allra sveitarfélaga munu liggja fyrir innan skamms á samræmdu formi og mun hag- og upplýsingasvið gera þeim skil í fréttabréfi síðar í næsta mánuði.
- Góð rekstrarafkoma og miklar fjárfestingar
- Úr ársreikningum 10 fjölmennustu sveitarfélaga landsins (tafla) - pdf
Úr ársreikningum 10 fjölmennustu sveitarfélaga landsins
A-hluti | A- og B-hluti | |||||||
Breyting, % | Breyting, % | |||||||
2017 | 2018 | 2017-2018 | 2017 | 2018 | 2017-2018 | |||
Skatttekjur | 177,6 | 193,1 | 8,7% | 176,8 | 192,2 | 8,7% | ||
Jöfnunarsjóður | 23,0 | 24,2 | 5,3% | 23,0 | 24,2 | 5,3% | ||
Aðrar tekjur | 40,8 | 38,0 | -6,9% | 120,4 | 122,1 | 1,5% | * | |
Heildartekjur | 241,4 | 255,3 | 5,8% | 320,4 | 339,0 | 5,8% | ||
Laun og tengd gjöld | 126,8 | 132,7 | 4,6% | 147,2 | 153,1 | 4,1% | ** | |
Hækkun lífeyrisskuldbindinga | 13,0 | 9,4 | -27,6% | 12,6 | 9,6 | -23,8% | ||
Annar rekstrarkostnaður | 78,3 | 87,1 | 11,3% | 97,5 | 106,8 | 9,5% | ||
Rekstrarkostnaður | 218,1 | 229,2 | 5,1% | 257,3 | 269,5 | 4,8% | ||
Framlegð (EBITDA) | 23,3 | 26,1 | 11,9% | 63,1 | 69,5 | 10,2% | ||
Fjármunatekjur mínus -gjöld | -3,8 | -6,7 | 77,8% | -5,0 | -27,3 | 442,3% | *** | |
Rekstrarniðurstaða | 9,6 | 10,8 | 12,5% | 36,2 | 20,9 | -42,2% | ||
Skuldir og skuldbindingar | 264,6 | 286,9 | 8,4% | 501,2 | 545,2 | 8,8% | ||
Nettó skuldir og skuldbindingar | 211,1 | 236,1 | 11,8% | 417,9 | 454,4 | 8,8% | **** | |
Veltufé frá rekstri | 24,3 | 28,5 | 17,4% | 55,7 | 63,9 | 14,7% | ||
Handbært fé frá rekstri | 14,3 | 23,9 | 66,8% | 45,9 | 53,9 | 17,3% | ||
Fjárfest í varanlegum rekstrarfjármunum | 26,4 | 36,0 | 36,3% | 54,8 | 62,8 | 14,8% | ||
Hækkun á handbæru fé | 1,6 | 3,4 | 118,3% | -4,2 | 14,4 | -447,1% | ||
Hlutföll af heildartekjum | ||||||||
Framlegð (EBITDA) | 9,7% | 10,2% | 19,7% | 20,5% | ||||
Rekstrarniðurstaða | 4,0% | 4,2% | 11,3% | 6,2% | ||||
Veltufé frá rekstri | 10,1% | 11,2% | 17,4% | 18,8% | ||||
Fjárfest í varanlegum rekstrarfjármunum | 10,9% | 14,1% | 17,1% | 18,5% | ||||
Skuldir og skuldbindingar | 109,6% | 112,4% | 156,4% | 160,8% | ||||
Nettó skuldir og skuldbindingar | 87,4% | 92,5% | 130,4% | 134,1% | ||||
* Lækkun annarra tekna A-hluta má rekja til minni tekna Reykjavíkurborgar af sölu byggingaréttar. | ||||||||
** Árið 2017 inntu sveitarfélög af hendi greiðslur til Brúar-lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga til að jafna halla á A-deild sjóðsins. Þessar greiðslur voru færðar á launakostnað. Fyrir vikið er hækkun launa og tengdra launa frá árinu 2017 til 2018 lægri en ella. | ||||||||
*** Hækkun fjármagnsgjalda A- og B-huta má rekja til OR, þar sem um verulega gjaldfærslu álafleiða var að ræða á árinu 2018 en tekjufærslu 2017. | ||||||||
**** Að frádregnum veltufjármunum. |