Uppbygging innviða á Íslandi. Ráðstefna á vegum lífeyrissjóða og innviðaráðuneytisins 2. febrúar 2023.
Fundurinn stendur frá kl. 8:30 -16:15 á Grand Hóteli. Húsið opnar kl. 8.00 og verður boðið upp á morgunverð.
Mikill áhugi hefur verið fyrir verkefnum tengdum uppbyggingu innviða hér á landi og standa Landssamtök lífeyrissjóða og innviðaráðuneytið fyrir ráðstefnu þar sem farið verður yfir málefnið á breiðum grunni.
Innviðaráðherra heldur erindi í upphafi dags auk þess sem fjölmargir fyrirlesarar með þekkingu á ýmsum hliðum innviðauppbyggingar verða með framsögu. Í kjölfarið verða pallborðsumræður þar sem ræddar verða ýmsar leiðir við fjármögnun innviða og reynt að varpa ljósi á tækifæri bæði frá innlendum og erlendum vettvangi.
Ráðstefnustjóri er Bergur Ebbi Benediktsson.
Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna, bæði fyrir þá sem mæta á staðinn og jafnframt þá sem fylgjast með í streymi.