Athygli sveitarfélaga er vakin á því að innviðaráðherra hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða fyrir árið 2023.
Um er að ræða tekju- og eignamörk leigjenda félagslegra leiguíbúða sem fjármagnaðar voru með lánum frá Íbúðalánasjóði á grundvelli þágildandi 1. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál fyrir 10. júní 2016 en þá tók við nýtt fyrirkomulag fjármögnunar slíkra íbúða með stofnframlögum á grundvelli laga um almennar íbúðir.
Frá og með 1. janúar 2023 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk leigjenda slíkra félagslegra leiguíbúða (skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál) eftirfarandi:
- Árstekjur einstaklings: 6.632.000 kr.
- Árstekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu: 1.658.000 kr.
- Árstekjur fyrir hjón og sambúðarfólk: 9.286.000 kr.
- Eignamörk verða: 7.158.000 kr.
Sjá breytingu í reglugerðasafni Íslands
Einnig er tilefni til að minna sveitarfélög á að ekki er lengur gerð krafa um þinglýsingu húsaleigusamninga til að öðlast rétt til opinbers húsnæðisstuðnings. Þess í stað skal skrá leigusamninga í húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Nánari leiðbeiningar um umsóknir um húsnæðisstuðning er að finna á vefsíðu HMS.